20/04/2024

Hrútadómar og Þuklaraball á laugardaginn

 Það verður sannkölluð stórhátíð í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum laugardaginn 14. ágúst kl. 14:00. Þá verður haldið í áttunda sinn Íslandsmeistaramót í Hrútadómum – venjulega kallað hrútaþukl – en þessi íþróttagrein hefur smám saman náð almennri hylli landans síðan Sauðfjársetrið hóf að halda mótið árið 2003. Um kvöldið verður síðan haldið Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni. Nóg verður um að vera; ókeypis verður inn á safnið og sýningu þess, Strandahestar bjóða upp á hestaferðir, ljúffengt kaffihlaðborð verður í boði í Kaffi Kind, skemmtiferðir verða farnar í dráttarvélavagni og leiktæki verða staðsett á íþróttavellinum.

Hrútadómarnir sjálfir fara þannig fram að Jón Viðar Jónmundsson ráðunautur og æðsti sauðfjárspekúlant Íslands fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra íturvaxna hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð fyrirfram. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir.

Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu fara hins vegar eftir stigakerfi sem bændur gjörþekkja. Afar veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum – t.d. hafa þrír efstu í vana flokknum undanfarin ár fengið meðal annars nokkra skammta af hrútasæði frá Sauðfjársæðingastöð Vesturlands!

Um kvöldið verður síðan hægt að kíkja á veglegt matarhlaðborð á Café Riis á Hólmavík milli kl. 18:00 og 21:00 og smella sér síðan á Þuklaraballið svonefnda sem fer fram í Félagsheimilinu á Hólmavík, en þar spilar skagfirski sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson ásamt hljómsveit sinni fyrir dansi.

Aðgangseyrir að dansleiknum er aðeins kr. 2.500, en ekkert kostar inn á hrútaþuklið né að taka þátt í því. Það er því tilvalið fyrir stóra sem smáa að gera sér ferð á Strandir á næstu helgi til að taka þátt í einhverri óvenjulegustu íþróttagrein heims.