28/03/2024

Hreinsunarátak í Strandabyggð

Hreinsunarátak er nú hafið í Strandabyggð og eru fyrirtæki, stofnanir og íbúar hvattir til að taka þátt. Kvennakórinn Norðurljós reið á vaðið með ruslatínslu meðfram vegum fyrir Vegagerðina og Vinnuskólinn í Strandabyggð fegrar umhverfið á hverjum degi. Þá hefur fjöldi íbúa lagt hönd á plóg og hreinsað í kringum bæi, tún og fjörur og í kringum íbúðarhús og götur á Hólmavík sem er til fyrirmyndar. Nýtt gámasvæði í Skothúsvík og geymslusvæði í landi Víðidalsár er ný þjónusta Strandabyggðar við þá sem eiga gáma eða vantar geymslustað undir tæki og tól og aðra geymslumuni.

Eru allir þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu beðnir um að hafa samband við Áhaldahús Strandabyggðar. Eftir 8. júlí 2011 verður hafist handa við að hreinsa lausamuni af lóðum og landi í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar sem ekki er í útleigu. Eru allir sem eiga muni á fyrrnefndum stöðum hvattir til að fjarlægja þá fyrir 8. júlí 2011.

Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna verður haldinn fimmtudaginn 23. júní 2011. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss Strandabyggðar fjarlægi rusl. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við starfsfólk Áhaldahússins fyrir fimmtudag.

Umhverfisdagur íbúanna verður svo haldinn á Hólmavík laugardaginn 25. júní 2011. Íbúar eru hvattir til að hreinsa til í kringum húsin sín og á opnum svæðum í hverfum sínum. Sorpsamlag Strandasýslu verður með opið þennan dag auk þess sem starfsmenn Áhaldahúss munu fara um bæinn og taka rusl á eftirfarandi tímum: kl. 14 í bláa hverfinu, kl. 15 í appelsínugula hverfinu og kl. 16 í rauða hverfinu.