16/04/2024

Héraðsmót í frjálsum íþróttum innanhúss

580-heradsmot9

Innanhúsmót í frjálsum íþróttum verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík sunnudaginn 15. desember. Mótið hefst kl. 11:00. Keppt verður í aldursflokkunum 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17 ára og eldri. Aldursflokkur 8 ára og yngri keppir í langstökki og spretthlaupi (leikskólakrakkar eru velkomnir). 9-16 ára keppa í hástökki, langstökki, spretthlaupi og kúluvarpi. Þátttökugjald er kr. 1.200 á hvern keppanda, en hámarks verð á fjölskyldu er 4000 kr. Þátttökuverðlaun verða fyrir yngri keppendur, en eldri keppa um sæti. Danmerkurfarar munu selja veitingar á staðnum. Þátttakendur og sjálfboðaliðar í tímatöku og mælingar skrái sig með því að senda skráningar á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Skráningu lýkur fimmtudaginn 12. desember. Þetta kemur fram á www.123.is/hss.