29/03/2024

Héraðsbókasafnið í sumarfrí

Héraðsbókasafn Strandasýslu sem er staðsett í Grunnskólanum á Hólmavík er að fara í sumarfrí, en síðasti opnunardagur er í kvöld, fimmtudaginn 30. júlí frá kl. 20:00-21:00. Eftir það verður safnið lokað þangað til skóli hefst í haust. Bókaormar eru því hvattir til að ná sér í lesefni í kvöld. Nýir félagar eru velkomnir en allir geta orðið meðlimir í bókasafninu fyrir árgjald að upphæð 2.900.-