24/04/2024

Hera spilar á Café Riis á fimmtudag

Söngkonan og trúbadorinn Hera er í tónleikaferð um Ísland og heldur þrjá tónleika á Vestfjörðum á næstu dögum, en frá þessu er sagt á vefsíðunni www.vestfirskmenning.is. Fyrst spilar hún á fimmtudagskvöldið 21. ágúst á Café Riis á Hólmavík, á föstudaginn í félagsheimilinu á Þingeyri og á laugardaginn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Ekki þarf að orðlengja að mikill fengur er að fá þessa sérstæðu söngkonu til tónleikahalds í fjórðungnum. Allir tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og miðaverð er kr. 1.500.- Heimasíða Heru er á slóðinni www.herasings.com.