25/04/2024

Helstu verkefni lögreglu

Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum um helstu verkefni vikuna 24.-30. nóvember kemur fram að í vikunni var tilkynnt um fjögur umferðaróhöpp á Vestfjörðum. Þrjú þeirra voru minniháttar óhöpp innanbæjar á Ísafirði. Þá valt tengivagn á hliðina á Hrafnseyrarheiði aðfaranótt þriðjudagsins. Mjög mikil hálka var á veginum og rann tengivagninn út af veginum þrátt fyrir að hafa verið á keðjum. Ökumann dráttarbifreiðar sem dró vagninn sakaði ekki en talsverðar skemmdir urðu á þessum ökutækjum. 

 Að morgni miðvikudagsins kom í ljós að reynt hafði verið að brjótast inn í Shellskálann í Bolungarvík. Tilraun hafði verið gerð til að spenna upp hurð á aðalinngangi skálanns og einnig hafði verið reynt að brjóta upp hurð á starfsmannainngangi. Þá var brotist inn í sundlaugarbygginguna á Þingeyri þessa sömu nótt og stolið peningum úr afgreiðslu. Þeir sem þar voru að verki brutu rúðu í húsinu til að komast inn og brutu síðan gler í afgreiðslu til að komast þar inn. Mál þessi eru í rannsókn og eru þeir sem mögulega hafa upplýsingar varðandi þessi tvö mál beðnir um að setja sig í samband við lögreglu í síma 450-3730.

Á föstudeginum var björgunarsveit frá Reykhólum kölluð út til að aðstoða vegfaranda á Þorskafjarðarheiði en hann hafði fest bifreið sína í snjó. Þá fór björgunarsveitin frá Hólmavík til að aðstoða mann sem svipað var ástatt fyrir á veginum um Eyrarfjall í Ísafjarðardjúpi að kvöldi laugardagsins. Þessir aðilar voru aðstoðaðir til byggða og varð ekki meint af.