29/03/2024

Helstu verkefni lögreglu á Vestfjörðum

Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum kemur fram að síðastliðin vika var tíðindalítil, skemmtanahald um hátíðarnar fór vel fram og án teljandi afskipta lögreglu. Umferð á vegum gekk nokkuð vel í vikunni fyrir jól, þrátt fyrir að færð og veður væri frekar leiðinlegt, skyggni á köflum mjög slæmt og hálka. Þó var eitt umferðaróhapp var  tilkynnt til lögreglu þriðjudaginn  21. des. Bíll á leið um Seyðisfjörð í Ísafjarðardjúpi hafnaði út fyrir veg þar sem mjög bratt var. Bíllinn valt ekki, en hallaðist verulega. Ökumaður og farþegar treystu sér ekki til að bíða í bílnum þar til aðstoð bærist, en fljótlega komu að vegfarendur sem aðstoðuðu fólkið þar til lögregla kom á vettvang.

Í millitíðinni hafði verið ræstur út björgunarsveitarbíll frá Súðavík, fólkinu til aðstoðar. Þegar lögregla og björgunarsveit kom á vettvang var ekki gerlegt að ná bílnum upp vegna veðurs og fékk fólklið far með lögreglu til Ísafjarðar. Rekja má þetta óhapp til mjög slæmra akstursskilyrða.

Miðvikudaginn 22. des. kom upp eldur í íbúðarhúsnæði við Aðalstræti á Ísafirði. Slökkvilið og lögregla kom á vettvang og gekk greiðlega hjá slökkviliði Ísafjarðarbæjar að slökkva eldinn. Eldsupptök mátti rekja til olíublautrar tusku sem skilin hafði verið eftir, en tuskan hafði verið notuð til að bera olíu á gólfborð. Um var að ræða sjálfsíkveikju í tuskunni.