23/04/2024

Haustfundur HSS á Drangsnesi


Haustfundur Héraðssambands Strandamanna (HSS) er haldinn á Malarkaffi á Drangsnesi í kvöld, fimmtudaginn 25. október kl. 19:30. Á honum verður fjallað um íþróttastarfið sem fram fór á vegum HSS og aðildarfélaga þess síðasta sumar, hvað tókst vel og hvað má bæta. Einnig verður fjallað um mótshald og starfsemi á komandi vetri. Allir áhugasamir um íþróttir á Ströndum og alhliða starfsemi ungmennafélaganna og HSS eru innilega velkomnir á fundinn. Boðið verður upp á súpu og brauð og kaffisopinn verður að sjálfsögðu ekki langt undan.