24/04/2024

Haustball Átthagafélagsins í kvöld


Haustball Átthagafélags Strandamanna verður haldið í kvöld, laugardaginn 20. október. Það fer að venju fram í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, 2. hæð. Þeir Ari Jónsson og Finnbogi Kjartansson sjá um að leika gömlu og nýju danslögin frá kl. 22:00 – 02:00. Miðaverð er aðeins kr. 2.000.- og félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti.