28/03/2024

Haminguhlaup á Hamingjudögum

Hamingjuhlaupið er að sjálfsögðu á dagskrá Hamingjudaga á Hólmavík, en þetta er einmitt 10. árið í röð sem fólk hleypur til móts við hamingjuna á hátíðinni. Að þessu sinni er hlaupin 34,9 kílómetra leið eftir gamla veginum yfir Tröllatunguheiði frá Króksfjarðarnesi til Hólmavíkur. Lagt er af stað kl. 10:10 á laugardagsmorgninum frá vegamótum Vestfjarðavegar (nr. 60) og gamla vegarins um Tröllatunguheiði, rétt vestan við Króksfjarðarnes. Leiðin liggur öll eftir vegi, fyrstu 25,8 km eftir malarvegi og síðustu 9,1 km á malbiki eftir þjóðvegum 68 og 61 frá Húsavík í Steingrímsfirði til Hólmavíkur.

Hamingjuhlaupið er gleðihlaup en ekki keppnishlaup. Hlaupararnir halda yfirleitt hópinn og fylgja tímaáætlun sem svipar mjög til strætisvagnaáætlunar. Þeir sem ekki treysta sér til að hlaupa alla leið geta þess vegna byrjað á ákveðnum áningarstöðum. Tímatöflu hlaupsins má sjá á myndinni hér.

Fyrsti áfangi hlaupsins er 5,3 km, að Heiðargötugili, en þar byrja brekkurnar upp á heiðina. Á þessum kafla er lítil hækkun. Annar áfangi sem er 7 km er frá Heiðargötugili upp á hæsta punkt heiðarinnar sem er í 420 m hæð rétt sunnan við Miðheiðarvatn. Eftir það er leiðin nánast öll á undanhaldinu.

Það er Stefán Gíslason, hamingjusamur bóndasonur og hlaupagarpur frá Gröf í Bitru og fyrrum sveitarstjóri á Hólmavík, sem er upphafsmaður Hamingjuhlaupsins.

Síðasti hamingjuhlauparinn kemur í mark í fyrra – ljósm. Jón Jónsson/strandir.saudfjarsetur.is