25/04/2024

Gista frekar í „bakgörðum“ en á tjaldsvæði


Erlendir ferðamenn á húsbílum hafa verið nokkuð áberandi á Hólmavík undanfarnar tvær vikur og gista gjarnan frekar í bílum sínum á opnum svæðum í kauptúninu en á tjaldsvæðinu þar sem er að finna fyrirmyndaraðstöðu. Undanfarnar nætur hafa undantekningarlaust verið húsbílar hér og þar í þorpinu. Liðna nótt gisti enginn á tjaldsvæðinu en aftur á móti var að finna húsbíla nánast í bakgörðum íbúanna. Það hefur verið vinsælt meðal ferðamannanna að leggja við höfnina og við Galdrasýninguna í stað þess að nýta þá aðstöðu sem er fyrir hendi. Tíðindamaður strandir.saudfjarsetur.is smellti myndum af tjaldsvæðinu og víðar um þorpið í gærkvöldi.

Slæm nýting á tjaldsvæðinu á Hólmavík


Næturgestir hreiðra um sig víðast hvar annarsstaðar