28/03/2024

Gagnvegur kemur út á morgun

Samkvæmt fréttatilkynningu kemur fyrsta tölublað 3. árgangs af Gagnvegi út fimmtudaginn 8. janúar og verður dreift þann dag. Í einhverjum tilfellum nær blaðið þó ekki í dreifbýli fyrr en á föstudegi, af óviðráðanlegum orsökum. Þá hefur verið ákveðið a.m.k. tímabundið, að prenta blaðið í svarthvítu vegna gríðarlegra hækkana á prentkostnaði. Lætur nærri að um sé að ræða 60% hækkanir á aðföngum frá upphafi útgáfunnar, á sama tíma og tekjur hafa dregist saman. Hins vegar fjölgar áskrifendum jafnt og þétt og jólavertíðin þetta árið var býsna góð hjá Gagnvegi, sem ef til vill má rekja til meðvitundar fólks um að versla í heimabyggð.

Gagnvegur óskar Strandamönnum gleðilegs nýs árs og þakkar viðskiptin og samskiptin á liðnu ári.