23/04/2024

Furðuleikar á sunnudag

Sauðfjársetur á Ströndum heldur Furðuleika sunnudaginn 5. júlí nk. Leikarnir fara fram á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð og eru lokapunkturinn á bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík, en þetta er í sjötta skipti sem Furðuleikarnir fara fram. Leikarnir hefjast kl. 13:00. Á Furðuleikum er keppt í ýmsum skringilegum íþróttagreinum sem eiga það sameiginlegt að vera afbragðs skemmtun og hafa ekki hafa hlotið viðurkenningu Alþjóða Ólympíunefndarinnar. Meðal þess sem fólk getur prófað á Furðuleikum er t.d. keppni í greinunum Öskri, Sviðalappaspretti og Girðingastaurakasti.

Í girðingastaurakastinu verður án efa gerð atlaga að heimsmeti Gunnars Þórs Garðarssonar, fyrrum vinnumanns á Felli í Kollafirði, en það er 19,90 metrar. Þess má til gamans geta að heimsmet alþingismanna er 18,10 metrar en þeim árangri náði Kristinn H. Gunnarsson á þriðju leikunum.

Þá má einnig nefna greinar eins og Kvennahlaup, Trjónufótbolta og nýja grein sem nefnist Ruslatunnuskotfimi, en hún er svo flókin og erfið að hún verður í þróun fram á síðasta dag. Síðast en ekki síst verður á dagskránni skítkast með lifandi skotmarki sem mikil leynd hvílir yfir hver er.

Andlitsmálun og blöðrusala verður í boði fyrir yngri kynslóðina, og í kaffistofu Sauðfjársetursins verður geysilega veglegt hlaðborð á boðstólum gegn vægu verði að vanda. Sögusýningin Sauðfé í sögu þjóðar verður opin að vanda. Aðgangur á Furðuleikana er ókeypis fyrir alla og alls engar kröfur eru gerðar til keppenda um færni, þol eða fyrri reynslu í íþróttum. Skráning í greinar fer fram á staðnum.