19/04/2024

Fundur um Hamingjudaga í kvöld

Í kvöld, mánudagskvöldið 7. maí verður haldinn íbúafundur í félagsheimilinu á Hólmavík vegna Hamingjudaga sem fara fram dagana 29. júní til 1. júlí í sumar. Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin og á fundinum gefst fundargestum tækifæri til að ræða saman á almennum nótum um hátíðina frá sem flestum hliðum. Íbúar í Strandabyggð, listafólk, tónlistarmenn, leikfélagsfólk, forsvarsmenn félaga, stofnana, verslunar og þjónustu og allir sem eiga hagsmuna að gæta eru sérstaklega hvattir til að mæta og leggja sínar hugmyndir af mörkum til að gera hátíðina skemmtilegri en nokkru sinni fyrr. Fundurinn hefst. kl. 20:00.

Í þessu sambandi má nefna að níu dagar eru til stefnu til að skila inn lögum í samkeppni um Hamingjulagið 2007. Frekari upplýsingar um það má finna á vefnum www.hamingjudagar.is.