25/04/2024

Fréttatilkynning frá lögreglunni á Vestfjörðum

Í fréttatilkynningu frá sameiginlegu lögreguliði á Vestfjörðum kemur fram að í síðastliðinni viku urðu tvö minniháttar umferðaróhöpp í umdæminu sem komu til kasta lögreglu. Á föstudaginn var ekið utan í bíl við Hótel ísafjörð og á laugardaginn varð óhapp í Vestfjarðargöngunum. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur. Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur i vikunni, 5 í nágrenni Ísafjarðar og 1 í nágrenni Patreksfjarðar. Sá sem hraðast fór ók á 123 km/klst þar sem hámarkshraðinn var 90. Um helgina lagði lögreglu ennfremur hald á 1400 ólöglega DVD myndbandadiska sem verið var að selja í Hnífsdal.

Lögregla vill benda foreldrum og forráðamönnum barna og unglinga á útivistartímann, að farið sé eftir þeim reglum sem þar gilda. Þá vill lögregla einnig benda á nauðsyn þessa að viðeigandi búnaður sé til staðar á reiðhjólum þegar þau eru notuð í myrkri og að sjálfsögðu að nota hjálma og ekki má gleyma endurskinsmerkjunum.