20/04/2024

Frestur til 17. apríl til sækja um til Menningarráðs

Menningarráð Vestfjarða hefur auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum og er þegar nokkuð af umsóknum komið í hús. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist. Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa.

Við fyrri úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur: 

a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs. 
b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað. 
d. Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna.
e. Verkefni sem miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Vestfjörðum komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.    
f.  Viðamikil samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi þriggja eða fleiri aðila og leiða til samstarfs milli ólíkra svæða á Vestfjörðum.

Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. apríl og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna á vef Menningarráðsins á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is