20/04/2024

Framtíðarlandið ályktar um umræðu um atvinnumál

Í fréttatilkynning frá Framtíðarlandinu segir að Samtök atvinnulífsins og
verkalýðshreyfingin taki niðurstöður síðustu þingkosninga ekki
alvarlega: "Talsmenn Samtaka atvinnulífsins eru meðal þeirra sem hæst hafa
kallað á uppbyggingu stóriðju. Þeim er ómögulegt að sjá nýja möguleika í
stöðunni eða draga lærdóm af uppbyggingu nýrra útflutningsfyrirtækja svo sem
á sviði hugbúnaðar, tölvuleikja og sjónvarpsþátta (Latibær) sem hafa ekki
verið gæluverkefni stjórnmálamanna. Svipað má segja um viðsemjendur þeirra
í verkalýðshreyfingunni. Stóriðjuframkvæmdir eru sameiginlegt áhugamál
þeirra og því markmiði skal náð með öllum ráðum."


Áfram segir í tilkynningu Framtíðarlandsins:

"Í vor gengu landsmenn til
kosninga og nýr þingmeirihluti varð til. En vart 
var búið að telja upp úr
kjörkössum þegar fréttist að samtök á
vinnumarkaði, hefðu sett saman nýja
efnahagsstefnu, svonefndan stöðugleikasáttmála. Undirskriftar
forsætisráðherra var krafist, ella skyllu á verkföll eða óraunhæfar kröfur um
kauphækkanir. Í sáttmálanum er
meðal annars kveðið á um að ríkisstjórnin muni
greiða götu stórframkvæmda svo sem framkvæmda vegna álvera í Helguvík og
Straumsvík. Þá var nefnt að kappkosta eigi að engar hindranir verði af hálfu
stjórnvalda í vegi slíkra
framkvæmda eftir 1. nóvember 2009.

Nú er til
dæmis vitnað til stöðugleikasáttmálans vegna ákvörðunar
umhverfisráðherra um
umhverfismat vegna Suðvesturlínu. Stjórnvöld hafi
lofað því að greiða götu
slíkra framkvæmda.

Einkennilegt er að litlar umræður skuli fara fram um
þýðingu þess fyrir lýðræði í landinu að stjórnvöld afsali sér valdi í hendur
samtaka á
vinnumarkaði. Sjálfsagt er að hlusta á rödd vinnumarkaðssamtaka
eins og
annarra, en annað mál er að fela þeim hluta af framkvæmdavaldinu.
Hafi þeir
áhuga á að stjórna landinu ættu þeir að freista þess að fá til þess
umboð,
með því að bjóða sig fram í almennum kosningum.

Tvö stærstu
orkufyrirtækin í opinberri eigu eiga nú erfitt með að afla fjár
til frekari
framkvæmda. Þau eru gríðarlega skuldsett og lánshæfismat þeirra
hefur lækkað
verulega síðasta árið. Um mitt ár námu skuldir Landsvirkjunar
og Orkuveitu
Reykjavíkur um 625 milljörðum króna.
Í því ljósi vekur athygli að stjórnendur
lífeyrissjóða hugleiði að lána
þeim. Sérstökum áhyggjum valda hugmyndir um
Fjárfestingarsjóð
lífeyrissjóða, en honum er ætlað að setja fé í fyrirtæki
sem eru
fjárhagslega illa sett. Meðal annars á að líta til starfsemi sem
aflar
gjaldeyristekna eða sparar gjaldeyri með starfsemi
sinni.
Lífeyrissjóðir eiga að vinna að því einu að ávaxta fé sjóðfélaga sem
best.
Þeim á ekki að setja pólitísk markmið. Slíkt væri að vísu lítið
áhyggjuefni
ef sjóðfélagar gætu flutt sparnað sinn annað. En skylduaðild

lífeyrissjóðum gerir það sérstaklega mikilvægt að þeim sé ekki beitt
í
pólitískum tilgangi.

Það er aldrei mikilvægara en nú að stjórnvöld
verji hagsmuni almennings og
stuðli að öguðum vinnubrögðum við
stórframkvæmdir."