20/04/2024

Fótboltamót HSS og Hólmadrangs


Innanhúsmót í fótbolta verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík sunnudaginn 9. desember. Mótið hefst kl. 11:00. Keppt verður í flokkum 6-9 ára (1.-4. bekkur), 10-11 ára (5.-6. bekkur) og 12-13 ára (7.-8. bekkur). Þátttökugjald er kr. 2.000 á hvern leikmann. Innifalið eru pizzur frá Cafe Riis og þátttökuverðlaun fyrir keppendur. Þátttakendur skrái sig hjá sínum þjálfurum, sem senda skráningar á netfangið
tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Einstaklingar geta einnig skráð sig með sama hætti. Þeim verður raðað í lið á staðnum. Skráningu lýkur fimmtudaginn 6. desember. Krakkar frá félagssvæði USVH (Hvammstanga) og UDN eru boðnir sérstaklega velkomnir ásamt krökkum á félagssvæði HSS.