19/04/2024

Fornleifarannsóknir halda áfram

Hvalbræðsluofn í StrákatangaStjórn Fornleifasjóðs hefur lokið úthlutun styrkja úr sjóðnum fyrir árið 2008, en fjárveitingar til sjóðsins í ár voru 25 milljónir króna. Alls bárust að þessu sinni 38 umsóknir að fjárhæð tæplega 74 milljónir króna, en þrettán verkefni fengu styrki. Eitt af þeim verkefnum sem fjárfest var í að þessu sinni er rannsókn á vegum Strandagaldurs ses um hvalveiðar útlendinga við Íslands, en síðustu ár hefur verið unnið að rannsóknum í Strákatanga við Hveravík.

Eftirtaldir hlutu styrki úr Fornleifasjóði í ár:

Adolf Friðriksson: Leit að kumlum í sunnanverðum Borgarfirði – 1,75 millj.
Albina H. Pálsdóttir: Uppgröftur á ruslahaug Miðbæjar í Flatey – 470 þús.
Byggðasafn Skagfirðinga, Guðný Zoëga: Kirkjur í Skagafirði, framhaldsrannsókn – 800 þús.
Fornleifafræðistofan, Bjarni F. Einarsson: Gröftur við landnámsminjar í Hólmi í Nesjum, Austur-Skaftafellssýslu – 3 millj.
Fornleifafræðistofan, Kristján Mímisson: Rannsókn á rústum 17. aldar býlisins Búðarárbakka – 2 millj.
Fornleifastofnun Íslands, Howell Magnús Roberts: Öskuhaugar á Möðruvöllum í Hörgárdal og víðar – 1,5 millj.
Fornleifastofnun Íslands, Uggi Ævarsson: Björgunaruppgröftur / forkönnun á Hólsfjöllum í Öxarfjarðarhreppi – 360 þús.
Fornleifastofnun Íslands og samstarfsaðilar, Garðar Guðmundsson o.fl.: Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp – 3,5 millj.
Fornleifastofnun Íslands, Lilja Björk Pálsdóttir: Uppmæling mannvirkja á Gufuskálum – 1,25 millj.
Hólarannsóknin, Ragnheiður Traustadóttir: Jarðfundnir gripir frá Hólum í Hjaltadal 2002-2007 – 1 millj.
Háskólinn á Hólum, Ragnheiður Traustadóttir: Kolkuóshöfn í Skagafirði – 2 millj.
Skriðuklaustursrannsóknin, Steinunn Kristjánsdóttir: Rústir Skriðuklausturs í Fljótsdal – 2,5 millj.
Strandagaldur ses: Hvalveiðar útlendinga við Ísland – 3 millj.