29/03/2024

Fjórðungssamband og Markaðsstofa sameinast

580-sundhani
Fréttatilkynning frá Markaðsstofu Vestfjarða
Vinnuhópur á vegum stjórnar Markaðsstofu Vestfjarða ses og Ferðamálasamtaka Vestfjarða hafa á síðustu vikum rætt saman um slit á starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða og fyrirkomulag markaðsmála í framhaldi af því. Unnið er að málinu í samræmi við samþykkt 57. Fjórðungsþings Vestfirðinga um sameiningu starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða og Fjórðungssambands Vestfirðinga. Drög að samkomulagi er nú til umfjöllunar hjá eigendum Markaðsstofu Vestfjarða og er að vænta niðurstöðu í apríl nk. en eigendur Markaðsstofu Vestfjarða eru Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Ferðamálasamtök Vestfjarða og Fjórðungssamband Vestfirðinga.

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga hefur samþykkt í millitíðinni að hafa umsjón með starfsemi Markaðsstofu og hefur Díönu Jóhannsdóttur, verkefnisstjóra hjá Fjórðungssambandinu, verið falið þetta verkefni af þess hálfu, í samráði við stjórn og framkvæmdastjóra.