28/03/2024

Fjör í Sauðfjársetrinu á sunnudaginn

Það verður feykinóg um að vera hjá Sauðfjársetrinu í Sævangi sjómannadaginn 1. júní. Í tilkynningu segir að fjörið hefjist kl. 14:00, en þá verður reitt fram kaffihlaðborð að hætti hússins. Setrið hefur ekki hækkað verð á kaffi og aðgangi að safninu þrátt fyrir verðbólguna. Kl. 16:00 hefst síðan stutt dagskrá, en þá verður m.a. Hrafni Jökulssyni veitt verðlaun og viðurkenning fyrir sigur í ljósmyndakeppni Sauðfjársetursins og í framhaldi af því flytur trúbadorinn Bjarni Ómar Haraldsson lög af sólóplötu sem hann er með í smíðum. Hinn sívinsæli fjölskyldufótbolti fer síðan fram á Sævangsvelli kl. 17:00. Í tilkynningunni segir að allir séu velkomnir í Sævang og vonast er til að sem flestir láti sjá sig.