23/04/2024

Fjögur tilboð í nýja brú yfir Staðará

Tilboð í smíði nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Staðará í Steingrímsfirði á Strandavegi 643 voru opnuð í gær. Fjögur tilboð bárust og voru þau öll lítið eitt hærri en áætlaður verktakakostnaður hjá Vegagerðinni sem var rúmar 85,2 milljónir. Lægsta tilboðið var frá Eykt ehf í Reykjavík og hljóðaði upp á rúmar 85,9 milljónir. Það hæsta var frá Spennt ehf í Reykjavík upp á rúmar 91,2, en einnig buðu Hannes Jónsson ehf í Reykjavík rúmar 87,7 milljónir í verkið og Geirnaglinn ehf á Ísafirði tæpar 87,2 milljónir.