20/04/2024

Ferðamálasamtök Vestfjarða með stjórnarfund á Hólmavík

Ferðamálasamtök Vestfjarða verða með stjórnarfund á Hólmavík á morgun, laugardaginn 16. janúar. Stjórn
samtakanna skipar fólk úr öllum héruðum Vestfjarðakjálkans og hún fundar minnst
einu sinni í mánuði. Oftast eru fundirnir símafundir en með nýjum vegi um
Arnkötludal gefst stjórnarmönnum frekar tækifæri á að hittast yfir veturinn þar
sem núorðið er eingöngu um það bil 2 1/2 klst akstur fyrir flesta að
mæta. Á fundinum á morgun verður fjallað mest um áform í markaðsmálum fjórðungsins ásamt forstöðumanni Markaðsstofu Vestfjarða, komandi
aðalfund sem verður á Núpi í Dýrafirði í apríl og nefndarvinnu vegna gönguleiða á Vestfjörðum. 

Sigurður Atlason á
Hólmavík er formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða. Aðrir í stjórn eru Áslaug
Alfreðsdóttir á Ísafirði, Björn Samúelsson á Reykhólum, Ester Rut Unnsteinsdóttir í Súðavík,  Keran Ólason frá Breiðavík, Sigurður Arnfjörð á
Núpi í Dýrafirði og Strandamaðurinn Sævar Pálsson sem rekur Hótel Flókalund.