28/03/2024

Ferðamál til framtíðar

BíldudalurNú á laugardaginn 22. nóvember verður haldið málþing um ferðamál í félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal þar sem rætt verður fram og aftur um ferðamál og framtíðina á sunnanverðum Vestfjörðum. Málþingið sem er öllum opið hefst kl. 10:00 á laugardagsmorgun og verður slitið kl. 16:00, en dagskráin er birt hér að neðan. Flutt verða erindi um ferðaþjónustu, rannsóknir, fræði og stoðkerfi, unnið í umræðuhópum og horft á stuttmyndina Willtir Westfirðir sem var tilnefnd til Edduverðlauna fyrr á árinu

Ferðamál til framtíðar:

Kl. 09.45     Húsið opnað, kaffi á könnunni.
Kl. 10.00     Málþingið sett. Skjöldur Pálmason, formaður atvinnumálanefndar.
Kl. 10.10     Ferðaþjónusta í dreifbýli – Niðurstöður könnunar meðal ferðamanna á Vestfjörðum sumarið 2008. Alda Davíðsdóttir, ferðamálafræðingur Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Vestfjörðum.
Kl. 10.30     Ferðaþjónusta í Vestur-Barðastrandarsýslu – fræði og raunveruleiki. Úlfar Thoroddsen, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar.
Kl. 10.45     Vegakerfið á suðursvæði Vestfjarða. Magnús Valur Jóhannsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar.
Kl. 11.00     Kynning á stoðgreinum ferðaþjónustunnar. Þorgeir Pálsson, frkvstj. atvest.
Kl. 11.15     Þróun ferðaþjónustu síðustu tveggja ára, framtíðarsýn og sóknarfæri. Fulltrúi Ferðamálafélags Barðastrandarsýslu.
Kl. 11.30     Matartengd ferðaþjónusta. Ásgerður Þorleifsdóttir, atvest.
Kl. 11.45     Ferðamál í nútíð og framtíð. Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð.

Kl. 12.00     Hádegishlé. Boðið upp á sjávarréttasúpu úr Arnarfirði.

Kl. 13.00     Stuttmyndin Willtir Westfirðir.
Kl. 13.45     Unnið í fimm umræðuhópum:
1      Hvaða ímynd viljum við hafa? Hvaða ferðamenn viljum við fá? Samvinna atvinnugreina við markaðssetningu og uppbyggingu ímyndar.
2      Hvernig nýtum við betur tækifæri sem búið er að benda á? Fuglalíf, sögu- og menningartengd ferðaþjónusta, skemmtiferðaskip, gönguferðir og fjallamennska, íþróttamót ofl.
3      Sjóferðir, siglingar.
4      Hvernig nýtum við okkur tækifæri sem felast í aukinni umferð frá Barðaströnd að Kinnarstöðum í Reykhólasveit þegar vegalagningu lýkur á þeirri leið?
5      Handverk, ferðaþjónusta og matartengd ferðaþjónusta.
Kl. 14.45       Kynning á niðurstöðum hópa.
Kl. 16.00       Þingi slitið.

Málþingið er öllum opið. Allir þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu á svæðinu eru hvattir til að mæta og taka þátt í störfum þingsins. Nánari upplýsingar má finna á www.vesturbyggd.is og hjá AtVest í Skor, þekkingarsetri á Patreksfirði í síma 490 2301 eða í netfanginu magnus@vesturbyggd.is (Magnús Hansson).