24/04/2024

Félagsmálafræðsla á Hólmavík

Áhugasamir eru minntir á að skrá sig á námskeið í félagsmálafræðslu á Hólmavík undir yfirskriftinni Sýndu hvað í þér býr! Það er Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands sem standa fyrir námskeiðinu, en þessir aðilar standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur. Hlutverk námskeiðsins er að sjá fyrir fræðslu í framkomu og fundarsköpum. Námskeiðið í félagsmálafræðslu á Hólmavík verður haldið 15. desember í Félagsheimilinu, það hefst kl. 18:00 og stendur til 22:00.

Áhugasömum er bent á að afla sér frekari upplýsingar um verkefnið hjá Guðrúnu Snorradóttur landsfulltrúa UMFÍ í síma 848-5917 og á gudrun@umfi.is