19/04/2024

Faðir fyrirgef þeim því þeir vita ei hvað þeir gjöra

Minningarreitur um Hilmi St-1"Faðir fyrirgef þeim því þeir vita ei hvað þeir gjöra" var það sem kom upp í huga ljósmyndara þegar hann gekk framhjá Höfðanum núna seinnipartinn. Þar sem hinn aldni eikarbátur Hilmir stóð áður hefur nú verið komið fyrir vönduðum krossi með nokkrum friðarkertum í kring. Það hefur heldur bæst á fjölda þeirra er á eftirmiðdaginn hefur liðið. Hilmir ST-1 var rifinn í gær með stórvirkri vél eftir dygga þjónustu í hartnær hálfa öld. Ljósmyndara hefur borist til eyrna að stefnt sé að erfidrykkju Hilmis klukkan 22:00 annað kvöld á Café Riis, en þá opnar barinn og í framhaldi af því verður leikið fyrir dansi. 

 

bottom

frettamyndir/2008/580-hilmir-utfor1.jpg

Ljósm.: Sigurður Atlason