20/04/2024

Ennþá hægt að kaupa Hamingjulagið árið 2011

Enn er hægt að nálgast geisladiskinn með Hamingjulaginu 2011, Vornótt á Ströndum, víða á Hólmavík. Lagið vann fimm önnur lög í lagasamkeppni sem var haldin á Hólmavík þann 20. maí, en höfundur lags og texta er Ásdís Jónsdóttir á Hólmavík. Lagið var tekið upp í frábærum gæðum af Sigurþóri Kristjánssyni í Stúdíó Gott hljóð í Borgarnesi en meðlimir í hljómsveitinni Festival spiluðu lagið. Útsetning lagsins er að miklu leyti sú sama og í keppninni, en þar var lagið útsett af Bjarna Ómari Haraldssyni á Hólmavík. Flytjendur eru yngismeyjarnar Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir og Elín Ingimundardóttir á Hólmavík.


Diskurinn kostar kr. 1.200.- og er hægt að finna meðal annars í Kaupfélaginu á Hólmavík og á Handverksmarkaði Strandakúnstar.