25/04/2024

Einn á fjöllum uppi

Jón Halldórsson frá Hrófbergi er töluvert fyrir fjallaferðir og finnst þá best að vera einn á ferð. Myndavélin er þó gjarnan með í för, eins og í ferð sem hann fór á snjósleða í blíðskaparveðri á dögunum og smellti af þeim myndum sem fylgja hér á eftir. Hér var lagt upp frá Steingrímsfjarðarheiði og leiðin lá þaðan fyrir Hvannadalsbotn og síðan í botninn á Reykjarfirði og upp á Búrfell. Þaðan að þriggja staura línustæði sem er norðvestan við Búrfellið og síðan að Glissu og á Eyrarháls. Síðan hélt Jón til baka yfir undir Ófeigsfjörð og síðan með krókum til Steingrímsfjarðarheiðar.

Háafell og Búrfell í baksýn

Horft út Reykjarfjörðinn og Veiðuleisukambur í baksýn

natturumyndir/580-strandafjallaferd-3.jpg

Horft út Reykjarfjörðinn, Reykjafjarðarbærinn og Kambur í baksýn

natturumyndir/580-strandafjallaferd-5.jpg

Toppurinn á Búrfelli og Reykjafjörður í baksýn

Horft ofan í Kjós og út Reykjafjörðinn og Háafell í baksýn

Myndin tekin  af toppi Búrfells, Reykjafjörður og bærinn í baksýn

Varðan á toppi Búrfells og Reykjafjörður í baksýn

bottom

Varðan á toppi Búrfells og Veiðuleysukambur í baksýn

bottom

Rafmagnsstaurarnir sem eru fyrir norðan Búrfellið

Fjallið Glissa í fallegum skrúða

Reykjafjarðarbotn og Kjós og Háafellshæðir í baksýn

1

Ingólfsfjörður og Ófeigsfjörður í baksýn

1

Glissa í hvítum skrúða

Ingólfsfjörður

Glissa í fallegum skrúða