19/04/2024

Brandarakeppni barna og unglinga

Þjóðfræðistofa heldur nú í þriðja sinn Húmorsþing helgina 1.- 3. apríl 2011. Af því tilefni verður efnt til brandarakeppni barna og unglinga í samstarfi við Grunnskólann á Hólmavík. Hver keppandi stígur þá á stokk og segir einn vel valinn og þaulæfðan brandara eða fer með smá uppistand. Keppnin fer fram í setustofu Grunnskólans, föstudaginn 1. apríl og hefst kl. 15:00. Keppnin verður tekin upp og send í útvarpið, en Þjóðfræðistofa er í samstarfi við þáttinn Leynifélagið á Rúv í tengslum við það. Þá verða veitt verðlaun fyrir 1.-3. sæti.