16/04/2024

Borgfirðingar unnu Ull í fat

Borgfirðingarnir sigruðuÁ sama tíma og hrútaþuklið fór fram á Sauðfjársetrinu í Sævangi á sunnudaginn, var haldin þar landskeppni í spuna undir heitinu Ull í fat. Keppnin fór þannig fram að fjögur lömb voru rúin á staðnum og spunnið var úr ullinni ókemdri. Fimm lið kepptu um að koma þessarri ull í fat og að þessu sinni átti að gera lambhúshettu með frjálsu sniði. Liðin sem kepptu voru Norðanvindur úr Þingeyjasýslum, Alþýðulist úr Skagafirði, Ullarselið á Hvanneyri, Þingborg í Flóa og Tröllin af Ströndum.

Fjórir til sex þátttakendur voru í hverju liði, en sérfróð dómnefnd Sauðfjársetursins valdi svo sigurliðið og tók mið af ýmsum þáttum svo sem flíkinni sjálfri, vinnubrögðum og hraða, skipulagi og samvinnu innan hópsins og ýmsum öðrum þáttum svo sem göngulagi, útliti nestisboxa og skemmtilegheitum liðanna.

Það var lið Ullarselsins á Hvanneyri sem stóð uppi sem sigurvegari og hafði hannað klæðilegustu lambhúshettuna að mati dómnefndar. Í liði Ullarselsins voru spuna- og prjónakonurnar Kristín Gunnarsdóttir, Rita Bach, Ástríður Sigurðardóttir og Ingibjörg Jónasdóttir. Einnig voru í liðinu Ásthildur Thorsteinsson faglegur liðstjóri og Guðmundur Hallgrímsson andlegur liðstjóri og leikfimistjóri. Ullarselshópurinn varðveitir því fram að næstu keppni glæsilegan farandgrip, sem gerður var af Miðhúsafeðgum og Landsamtök sauðfjárbænda gaf.

1

Gamangaman

saudfjarsetur/580-prjona4.jpg

saudfjarsetur/580-prjona5.jpg

saudfjarsetur/580-prjona16.jpg

saudfjarsetur/580-prjona14.jpg

saudfjarsetur/580-prjona15.jpg

saudfjarsetur/580-prjona7.jpg

saudfjarsetur/580-prjona10.jpg

saudfjarsetur/580-prjona9.jpg

saudfjarsetur/580-prjona2.jpg

saudfjarsetur/580-prjona13.jpg

saudfjarsetur/580-prjona6.jpg

Ljósm. Ásdís Jónsdóttir og Jón Jónsson