25/04/2024

Bókmennta- og ljóðavika – dagskrá

Seiður

Vikuna 17.-23. nóvember mun Hólmavík breytast í Bókavík en þá verður haldin Bókmennta- og ljóðavika í Strandabyggð. Mikill fjöldi viðburða er á dagskránni í þessari skemmtilegu viku, en hugmyndin er komin frá ungu kynslóðinni, var verðlaunatillaga í samkeppni Landsbyggðarvina frá síðasta vetri. Tilgangurinn er að fagna ljóðum og bókmenntum. Dagskrána má sjá hér að neðan:

Mánudagurinn 17. nóvember

Leikskóli: Bókadagur hjá yngstu íbúunum.
Grunnskóli: Yndislestur í 10 mínútur í upphafi dags.
Sundlaug: Hljóðbók í pottinum fyrir alla aldurhópa. Kl. 17-18.
Bókasafn: Hvað á ég að lesa? Nokkrir einstaklingar segja frá sínum uppáhaldsbókum og gefa þér hugmyndir að lestri vikunnar. Kl. 19:30.
Leikfélagið: Opinn samlestur á leikritum í Grunnskólanum kl. 18.
Fjósið ungmennahús (Hafnarbraut 19): Bókahringur fyrir alla, sérstaklega þá sem lesa lítið. Kl. 20-23.
Sauðfjársetur: „Með hálfum huga ýti ég flekanum mínum úr vör“ – upplestur og fróðleikur um ritstörf Guðbjargar á Broddanesi. Kvöldkaffi kl. 21:00-22:00, vöffluhlaðborð og kakó. Verð kr. 1.000.- fyrir 13 ára og eldri og 600.- fyrir 12 ára og yngri.

Þriðjudagurinn 18. nóvember

Grunnskóli: Yndislestur í 10 mínútur í upphafi dags.
Sundlaug: Hljóðbók í pottinum fyrir alla aldurshópa. Kl. 17-18.
Bókasafn: Opinn hljóðnemi kl. 19:30. Áhugasömum gefst kostur á að lesa upp eigin ljóð og sögur og hlýða á aðra.
Ozon: Lestrarhestaþema. Opið fyrir alla kl. 20 í Grunnskólanum, bókakaffihús og upplestur.

Miðvikudagurinn 19. nóvember

Leikskóli: Upplestur í leikskólanum kl. 10, opið fyrir alla.
Grunnskóli: Yndislestur í 10 mín. Opið hús í skólanum klukkan 13-14 þar sem nemendur kynna afrakstur ljóða- og bókmenntavinnu.
Gunna fótalausa: Gengið á milli ljósastaura og lesið það sem þeir hafa fram að færa. Lagt af stað frá Þróunarsetrinu kl. 12:05.
Félag eldri borgara: Upplestur á Sjúkrahúsinu kl. 14.
Sundlaug: Hljóðbók í pottinum fyrir alla aldurshópa. Kl. 17-18.
Bókasafn: Bókaspa og bókajóga með Röbbu kl. 19:30.
Leikfélagið: Dagskrá á Kaffi Galdri um Stein Steinarr kl. 20.

Skilafrestur á ljóðum og smásögum í ljóða- og smásagnakeppni rennur út miðvikudaginn 19. nóv.! (tomstundafulltrui@strandabyggd.is)

Fimmtudagurinn 20. nóvember

Grunnskóli: Yndislestur í 10 mín.
Sundlaug: Hljóðbók í pottinum fyrir alla aldurshópa. Kl. 17-18.
Bókasafn: Upplestur frá Félagi eldri borgara. Kl. 19:30.
Fjósið ungmennahús: Sýnd verður bíómynd byggð á bók. Kl. 20.
Kaffi Galdur: Andri Snær Magnason sér um kvöldvöku og Íris Björg spilar vel valin lög eftir enn betur valin ljóðskáld! Kl. 20.

Föstudagurinn 21. nóvember

Grunnskóli: Yndislestur í 10 mín. Andri Snær Magnason kemur í heimsókn.
Leikskólinn: Ljóðaupplestur með brúðum kl. 10, öll velkomin.
Sauðfjársetur:  Leikfélag Hólmavíkur sýnir gamandramað sMaL eftir Arnar Snæberg Jónsson. Húsið opnar 19:30 og kl. 20 verður súpa á boðstólum og sagðar gamansögur af leiksviðinu. Að því loknu verður  einþáttungurinn  sMaL sýndur, en hann var frumsýndur á sviðaveislunni á dögunum. Kaffi á eftir. Aðgangseyrir kr. 2.000.- fyrir 13 ára og eldri, 1.000.- fyrir yngri.

Laugardagurinn 22. nóvember

Gunna fótalausa / Dreifnám FNV á Hólmavík: „Það er engin þörf að kvarta, þegar blessuð sólin skín.“ Ganga um söguslóðir á Hólmavík. Gengið frá Hafnarbraut 7 (Hólmakaffi), kl. 13. Áð við minnismerkið um skáldið Stefán frá Hvítadal. Gönguferðin krydduð með fróðleik og ljóðum Stefáns.
Sundlaug: Hljóðbók í pottinum fyrir alla aldurshópa. Kl. 17-18.
Auðbók: Kvöldvaka í Kirkjuhvamminum kl. 18. Lesið upp úr Auðbókinni, bókinni sem við höfum sameinast um að skrifa undanfarnar vikur. Kertaljós og boðið upp á kakó og piparkökur. Klæðum okkur eftir veðri og njótum þess að hittast og fögnum samstöðunni sem þessi litla bók myndar!
Finna Hótel: Upplestur á vegum Leikfélags Hólmavíkur kl. 20.

Sunnudagurinn 23. nóvember

Fjósið ungmennahús (Hafnarbraut 19): Börnum verður boðið í heimsókn til að hlusta á sögur sem unga fólkið ætlar að flytja. Kl. 13.
Kaffi Galdur: Kaffisala, lokahátíð og verðlaunaafhending. Kl. 15.

Allir atburðir eru gjaldfrjálsir nema annað komi fram. Sjáumst á Bókavík!