29/03/2024

Bjarni lagði Kristján

Bjarni Ómar Haraldsson var ekkert að tvínóna við hlutina í tippleik helgarinnar og lagði Kristján Sigurðsson á býsna sannfærandi hátt með átta stigum gegn fimm. Kristján hefði með sigri náð efsta manni í leiknum að stigum, enda búinn að standa sig afar vel í leiknum undanfarnar umferðir. strandir.saudfjarsetur.is þakka Kristjáni kærlega fyrir þátttökuna og spennandi verður að sjá hvern hann skorar á í næstu umferð. Bjarni Ómar keppir áfram í leiknum á næstu helgi og stefnir vafalítið að því að saxa á forskot Jóns Jónssonar sem hefur verið í fyrsta sæti frá upphafi. Úrslit helgarinnar og stöðuna í leiknum má sjá hér fyrir neðan:

Árangur tippara hingað til:
1. Jón Jónsson – 4 sigrar (5 jafnt.)
2. Kristján Sigurðsson – 3 sigrar (1 jafnt.)                     
3. Höskuldur Birkir Erlingsson – 2 sigrar (1 jafnt.)
4-5. Jón Eðvald Halldórsson – 1 sigur (2 jafnt.)
4-5. Smári Gunnarsson – 1 sigur (2 jafnt.)
6. Bjarni Ómar Haraldsson – 1 sigur
7. Þröstur Áskelsson – 0 sigrar (3 jafnt.)
8. Halldór Logi Friðgeirsson – 0 sigrar (2 jafnt.)
9-13. Björn Fannar Hjálmarsson – 0 sigrar
9-13. Guðmundína A. Haraldsdóttir – 0 sigrar
9-13. Höskuldur Búi Jónsson – 0 sigrar
9-13. Jóhann Áskell Gunnarsson – 0 sigrar
9-13. Sigurður Marinó Þorvaldsson – 0 sigrar

Sá sigrar í leiknum sem vinnur flestar viðureignir. Ef keppendur ná jafnmörgum sigrum vinnur sá sem hefur gert fleiri jafntefli. Ef enn er jafnt eftir það gildir meðaltal stiga yfir veturinn. Ef meðaltalið er jafnt (sem væri í hæsta máta ótrúlegt) þurfa keppendurnir að keppa í bráðabana með því að tippa á getraunaseðil.

LEIKIR

ÚRSLIT

KRISTJÁN

BJARNI

1. Liverpool – Tottenham   

1

1

1

2. Arsenal – Middlesbro

1

1

1

3. Fulham – Newcastle  

1

1

X

4. Aston Villa – West Ham

2

1

2

5. Portsmouth – Everton

2

X

2

6. Charlton – Birmingham

1

1

1

7. Blackburn – Bolton

X

2

2

8. Ipswich – Sheff. Utd.

X

1

X

9. Brighton – Leeds

1

2

2

10. Hull – C. Palace  

2

1

2

11. QPR – Southampton

1

1

X

12. Plymouth – Norwich

X

2

2

13. Sheff. Wed. – Leicester

1

2

1

 

 

5 réttir

8 réttir