23/04/2024

Bingó á Hólmavík á sunnudag

Félag eldri borgara í Strandasýslu heldur bingó í Félagsheimilinu á Hólmavík sunnudaginn 14. mars næstkomandi. Hefst skemmtunin klukkan 14:00 og eru frábærir vinningar í boði. Aðgangseyrir er samkvæmt tilkynningu kr. 1.200.- fyrir 12 ára og eldri og er þá eitt bingóspjald, kaffi og kökur innifaldar. Einnig verða seldir lukkupakkar á staðnum.