16/04/2024

Báturinn Hilmir rifinn

Eftir hádegi í dag var hafist handa við að rífa Hilmi St-1 á Hólmavík með stórvirkri skurðgröfu samkvæmt ákvörðun sveitarfélagsins. Báturinn hefur staðið á landi á Hólmavík frá árinu 1996, en þá var hann dreginn á land með það fyrir augum að nýta hann í ferðaþjónustu sem einskonar sýningargrip og varðveita hann til minningar um sögu útgerðar á Hólmavík. Hilmir var smíðaður 1942 og hafði smíðanúmer 1 úr dráttarbrautinni í Keflavík. Hann kom til Hólmavíkur 2 árum seinna, á sjómannadaginn á lýðveldisárinu, og á honum var sóttur sjórinn frá Hólmavík í hálfa öld. Fréttaritari strandir.saudfjarsetur.is fylgdist með niðurrifinu með myndavél í hönd, en báturinn hefur verið vinsælt myndefni ferðamanna þau ár sem hann hefur fengið að vera.

1

bottom

frettamyndir/2008/580-hilmir12.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir11.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir9.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir8.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir6.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir5.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir3.jpg

frettamyndir/2008/580-hilmir2.jpg

Hilmir rifinn – ljósm. Jón Jónsson