25/04/2024

Ballið á Bessastöðum

ballid1

Föstudaginn 18. mars kl. 20:00 frumsýnir Leikfélag Hólmavíkur fjölskyldusýninguna Ballið á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju í Félagsheimilinu á Hólmavík. Sýningin er hluti af Barnamenningarhátíð Vestfjarða sem stendur yfir hér á Hólmavík um þessar mundir með tilheyrandi skemmtun og dagskrá. Leikaravalið er ekki af verri endanum því auk leikfélagsmeðlima mun hópur grunnskólanemenda stíga á svið, en hefð er fyrir því að Grunn- og tónskólinn á Hólmavík og Leikfélag Hólmavíkur leiði saman hesta sína annað hvert ár og setji á svið stórt verk í sameiningu. Samvinnan er býsna dýrmæt, enda er leikhúshefð afar rík á Hólmavík þar sem ungt fólk lærir snemma að stíga á svið og koma fram, sem aftur reynist þeim gott veganesti inn í framtíðina og stuðlar að öruggri endurnýjun hjá okkar öfluga áhugaleikfélagi.

Í ljósi þess að forsetakosningar verða hérlendis í sumar, fannst Leikfélaginu tilvalið að velja þessa skemmtilegu fjölskyldusýningu og um leið vekja athygli almennings, ekki hvað síst ungu kynslóðarinnar, á embættinu og tilvist þess. Ljóst er að þessu sýning hefur náð eyrum nokkurra frambjóðenda, sem hafa meira að segja sýnt því áhuga að mæta, kannski til að æfa sig fyrir komandi embættisverk! Þó ber að taka það fram að sá alvarleiki sem býr í forsetaembættinu sjálfu er víðsfjarri þessari sýningu, enda er um að ræða hressandi verk fyrir alla fjölskylduna, þar sem fram koma m.a. forseti, landnámshæna, ritarar, ráðskona, prinsessa, kýr og draugur.

Leikstjóri er Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir. Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hólmavík og eru eftirfarandi sýningar á dagskrá:

Frumsýning, föstudaginn 18. mars klukkan 20:00.
2. sýning, sunnudaginn 20. mars klukkan 14:00.
3. sýning, þriðjudaginn 22. mars klukkan 18:00.
4. sýning, Páskadag 27. mars klukkan 20:00.
5. sýning, fimmtudaginn 31. mars klukkan 18:00.

Panta má miða hjá Dagbjörtu í síma 8240756 og kostar 2500 kr fyrir 14 ára og eldri, en 1500 kr fyrir 4-13 ára.