25/04/2024

Atvest auglýsir störf

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða auglýsir eftir starfsmönnum í tvær stöður á vef sínum www.atvest.is. Annars vegar er auglýst eftir verkefnisstjóra fyrir Markaðsskrifstofu Vestfjarða með aðsetur á Ísafirði og hins vegar eftir atvinnuráðgjafa með aðsetur á Patreksfirði. Ekki er að þessu sinni auglýst eftir starfsmanni með aðsetur á Ströndum, en frést hafði að það stæði hugsanlega til að ráða slíkan í samvinnu við sveitarfélög á svæðinu. Ritstjórn vefjarins strandir.saudfjarsetur.is hefur ekki upplýsingar um hvar það mál er á vegi statt og hefur satt best að segja dálitlar áhyggjur af því af hverju er ekki líka auglýst eftir starfsmanni á þessu svæði nú. Auglýsingarnar fara hér á eftir.

Verkefnisstjóri Markaðsskrifstofu Vestfjarða:

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða auglýsir eftir starfsmanni í stöðu verkefnisstjóra Markaðsskrifstofu Vestfjarða með aðsetur á Ísafirði.  Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.

Starfslýsing:
Verkefnisstjórinn þarf að geta unnið í og stýrt fjölbreyttum verkefnum varðandi markaðssetningu Vestfjarða sem áfangastað ferðamanna.  Dæmi um verkefni eru:
Markaðsáætlanagerð og markaðsgreiningarvinna
Framkvæmd og samræming markaðsaðgerða.
Ráðgjöf varðandi markaðssetningu ferðaþjónustu bæði til sveitarfélaga og til ferðaþjónustufyrirtækja.
Markaðsskrifstofa Vestfjarða er þróunar- og samstarfverkefni sveitarfélaga á Vestfjörðum og Ferðamálasamtaka Vestjarða.  Undirbúningur stofnun skrifstofunnar á lokastigi.  Skrifstofan verður til húsa í Þróunarsetri Vestfjarða á Ísafirði og starfar í nánu samstarfi við AtVest og hagsmunaðila í ferðaþjónustu á öllum Vestfjörðum.
 
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun á sviði viðskipta eða markaðsfræði.  Einnig koma til greina einstaklingar með víðtæka reynslu í markaðssetningu ferðaþjónustu.
 
Viðkomandi þarf að hafa góða tölvuþekkingu og góða tungumálakunnáttu.
 
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi, hafa góða framkomu, eiga auðvelt með að starfa með öðrum og tjá sig í töluðu og rituðu máli.

Atvinnuráðgjafi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða:

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. (AtVest),  auglýsir eftir starfsmanni í stöðu atvinnuráðgjafa með aðsetur á Patreksfirði.  Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
 
Starfslýsing
Atvinnuráðgjafi vinnur í fjölbreyttum verkefnum í flest öllum greinum atvinnulífsins.  Dæmi um verkefni eru:
Verkefni fyrir sveitarfélög varðandi eflingu atvinnulífs.
Töluleg greining á ástandi atvinnulífs.
Ráðgjöf til frumkvöðla og fyrirtækja.  Sú ráðgjöf getur verið:
Viðskiptaáætlana- og rekstraráætlanagerð.
Markaðsgreiningar og markaðsáætlanagerð.
Ráðgjöf varðandi fjármögnun og styrkumsóknargerð.
Starf atvinnuráðgjafa eru unnið í samstarfi við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp.  Verkefni eru krefjandi þar sem þekking á viðskiptum og atvinnulífi nýtist vel.
 
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun á sviði viðskipta, rekstrarfræði eða markaðsfræði. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í fyrirtækjarekstri.
 
Viðkomandi þarf að hafa góða tölvuþekkingu og góða íslensku- og enskukunnáttu.
 
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi, hafa góða framkomu, eiga auðvelt með að starfa með öðrum og tjá sig í töluðu og rituðu máli.

 
Umsóknarfrestur og upplýsingar:
 
Nánari upplýsingar um bæði störfin veitir Neil Shiran Þórisson, viðskiptaráðgjafi AtVest í símum 450 3051 og 897 2617 eða með tölvupósti (shiran@atvest.is).  Umsóknir sendist með tölvupósti á shiran@atvest.is eða bréflega  til Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf., B.T. Shiran Þórisson, Árnagötu 2-4, 400 Ísafirði, eigi síðar en 20. júlí n.k.