29/03/2024

Áskorun á ráðherra og alþingismenn

Fjórðungssamband, málefni fatlaðs fólks

Landshlutasamtök á öllu landinu og þar með Fjórðungssamband Vestfirðinga hafa sameinast um áskorun þar sem skorað er á ráðherra og alþingismenn að tryggja að við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 verði aukin framlög til eftirtalinna málaflokka sem allir eru gríðarlega mikilvægir fyrir byggðaþróun til framtíðar:

  • Þjónusta við fatlað fólk
  • Samningar um sóknaráætlun
  • Samgöngumál (nýframkvæmdir, viðhald og þjónusta)
  • Almenningssamgöngur
  • Ljósleiðaravæðing

Í ályktuninni segir ennfremur: „Landshlutasamtökin eru sem fyrr reiðubúin til að leggjast á árar með sínum kjörnu fulltrúum og ríkisvaldinu við að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Það verður þó ekki gert nema vilji til þess sjáist í fjárlagafrumvarpinu gagnvart þessum lykilmálum.“

Meðfylgjandi mynd tók Jón Jónsson á aukaþingi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks, sem haldið var á Hólmavík á dögunum.