28/03/2024

Árshátíð Félags Árneshreppsbúa – forsala miða í dag

Árshátíð Félags Árneshreppsbúa verður haldin laugardaginn 7. mars í Kiwanissalnum Engjateigi 11. Húsið opnar kl. 19.00 með fordrykk, en borðhald hefst stundvíslega kl 19.30. Forsala miða verður laugardaginn 28. febrúar milli kl. 14.00 og 16.00 á sama stað. Miðaverð í mat og á dansleik er kr. 6.000.-, en miðaverð einungis á dansleik kr 2.000.- Allar nánari upplýsingar fást hjá Sigríði Höllu í s. 555-4997 og 864-3785 og hjá Hrönn í s. 899-4124 og eins hjá formanni Kristmundi í síma 565-0709 og 898-2441.

Matseðill.
Aðalréttur: Stórsteikarhlaðborð, lambakjöt, svínakjöt og kalkúnn með öllu tilheyrandi.
Eftirréttur: Bláberjaskyrterta með rjóma ásamt kaffi.

Veislustjóri.
Gísli Gunnsteinsson, sem sló svo rækilega í gegn á Kaffi Norðurfirði í sumar.

Skemmtiatriði.
Björgvin Franz Gíslason.

Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi að borðhaldi loknu.
Gott fólk takið með ykkur gesti og skemmtum okkur saman á frábærri árshátíð félagsins.