24/04/2024

Alli Nalli og tunglið á Kaffi Galdri kl. 17:30

Möguleikhúsið er statt á Hólmavík þessa stundina og eru aðstandendur þess á fullu að undirbúa leiksýningu fyrir yngstu kynslóðina. Sýningin fer fram á Kaffi Galdri og heitir Alli Nalli og tunglið og fjallar um pössunarpíurnar Ólína og Lína. Þær vita fátt betra en að vera með
börnum, fara með þeim í leiki og gera annað skemmtilegt. Þær hafa líka
ýmsar sögur að segja af honum Alla Nalla, sem var fyrsti krakkinn sem
þær pössuðu. Þó Alli Nalli væri oftast góður og þægur átti hann stundum
til að vera pínulítið óþekkur eins og aðrir krakkar. Eins og til dæmis
þegar hann harðneitaði að borða grautinn sinn á kvöldin. Þá gaf mamma
hans tunglinu grautinn og tunglið stækkaði og stækkaði…

Bókin
um Alla Nalla og tunglið kom fyrst út árið 1959. Það var fyrsta
barnabókin sem Vilborg Dagbjartsdóttir skrifaði og jafnframt fyrsta
bókin sem kom út eftir hana. Það er því vel við hæfi að fagna fimmtíu
ára höfunarafmæli hennar með sviðsetningu á þessu ástsæla verki. Síðar
komu einnig út barnabækurnar Sögur af Alla Nalla og Labbi pabbakútur,
en það eru einkum þessar þrjár sem leiksýningin byggir á.

Fyrir áhorfendur á aldrinum 1 til 8 ára

Leikstjóri og höfundur leikgerðar Pétur Eggerz
Leikmynd og búningar Messíana Tómasdóttir
Tónlist Kristján Guðjónsson
Leikarar Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir
Miðaverð kr. 1500.