20/04/2024

Afmælistónleikar Kórs Átthagafélags Strandamanna

Kór Átthagafélags Strandamanna á 50 ára starfsafmæli í ár og af því tilefni heldur hann afmælishátíð í Langholtskirkju laugardaginn 25. október kl. 16. Stjórnandi kórsins er Krisztína Szklenár og einsöngvari er Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Ásamt Kór Átthagafélags Strandamanna koma eftirtaldir kórar fram á afmælishátíðinni: Kvennakórinn Norðurljós frá Hólmavík, Landsvirkjunarkórinn, Karlakór Kjalnesinga, Kvennakór Garðabæjar og Húnakórinn. Allir eru hjartanlega velkomnir til að fagna þessum tímamótum, en aðgangseyrir er 1000 kr.