19/04/2024

Aðventukvöld í Hólmavíkurkirkju á sunnudag

Framundan er aðventukvöld í Hólmavíkurkirkju, en það verður hins vegar ekki kvöld eins og áður hafði verið kynnt, vegna veðurútlits og veðurspár. Aðventukvöldið verður hins vegar haldið sunnudaginn 6. desember kl. 17:00 og verður þá mikið um dýrðir, því jafnframt stendur til að vígja nýja orgelið í Hólmavíkurkirkju. Söfnun fyrir orgelinu hefur staðið yfir undanfarið og verður hún kynnt á súpufundi á Café Riis í hádeginu á fimmtudag.