16/04/2024

Aðalfundur foreldrafélags á fimmtudaginn

AÍ fréttatilkynningu frá Foreldrafélagi Grunnskólans á Hólmavík kemur fram að aðalfundur félagsins þetta skólaárið verði haldinn næstkomandi fimmtudag, 29. október, í Grunnskólanum og hefst fundurinn klukkan 17:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, auk þess sem opnar umræður verða um ýmis mál tengd skólastarfinu og starfsemi félagsins.